Banner

Content on this page requires a newer version of Adobe Flash Player.

Get Adobe Flash player

Forsíða Um Eyrarodda Hafðu samband Flateyri
BB
Saebjorg
Onfirdingafelagid
Palli Önna
Sjavarutvegur
Blossi

Strandveiðar út frá Flateyri

Eyraroddi hf. býður útgerðaraðila velkomna til Flateyrar og óskar eftir viðskiptum við þær útgerðir sem kjósa að gera út frá Flateyri.

Eyraroddi hf sér um alla löndun og útvegar ís og fiskikör, sé þess óskað. Beitingarþjónusta er jafnframt í boði. Gistiaðstaða er næg á Flateyri og útgerðum í viðskiptum við Eyrarodda hf. boðið frítt í sund á Flateyri eins og öðru starfsfólki Eyrarodda hf.

Á Flateyri er rekinn barinn og veitingarstaðurinn Vagninn. Söluskáli N1 er opinn alla daga og útibú Sparisjóðsins, ásamt póstþjónustu, er opið eftir hádegi alla virka daga.

Áhugasömum er bent á að hafa samband við Sigurð Þórisson, verksmiðjustjóra, í síma 456-0101 eða 861-8975.